Það hefur enginn párað neitt , á þennan litla lið.
Kannski hefur bara, enginn séð ann.
Ég hef líka lengi, lengi alltaf sett í bið
að skrifa þér, og gera eitthvað með hann.
Tilveran er stundin,sem líður áfram hljótt
og lífríkið sem stendur, hátt í blóma.
Dagurinn sem vakir, líka næstu nótt,
og sendir frá sér yndislega hljóma.
Þistilfjörðinn þekkja fáir, alveg út og inn
því enginn hefur allan, getað séð ann.
Af Garðsfjallinu einhvern veginn, alltaf best ég finn
orkuna sem heimurinn fær héðan.
Ef tilveran er bara lítil, saklaus sumarlind
sem fjallið lætur, renna niður dalinn,
þá er kannski ekkert til, sem heitið getur synd
hvorki ærnar, kýrin eða smalinn.
Tilveran er dásamleg, og hún er búin til
úr anda þeim,sem stærri er en jörðin.
Heimskautsbauginn skilja að, enginn millibil
himinn haf, og sjálfan Þistilfjörðinn.
BÞ.