Almennt - föstudagur 03.maí 2019
Trausti Ragnarsson er fæddur og uppalinn í Brú á Eskifirði, og heldur sannarlega tryggð við nafnið Brú.
Trausti og Abba bjuggu í húsinu Brú á Eskifirði og hann stofnaði Trésmíðaverkstæðið Brú í Þistilfirði ásamt vini sínum Jóhannesi .
Abba og Trausti fluttu til Þórshafnar fyrir nokkrum árum og búa þar í glæsilegri íbúð . Þau komu sér upp fallegu garðhúsi sem þau nefna Brú. Hagleiksmaðurinn Trausti skar út fallegt skilti á garðhúsið með nafninu Brú.