Undirbúningsstjórn að sameingingu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps hefur samþykkt að fá tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag frá íbúum og öðrum sem vilja taka þátt. Þetta er rafræn hugmyndasöfnun þar sem öllum gefst kostur á að senda inn tillögur. Hugmyndasöfnun lýkur fimmtudaginn 5. maí kl. 16. Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan til að koma tillögu þinni á framfæri.
Kjörstjórn hefur ákveðið að tekið verði á móti framboðum til sveitarstjórnar vegna kosninga 14 maí nk. í sal sveitarstjórnar Langanesbyggðar á milli kl. 11 og 12, föstudaginn 8, apríl. Lesa meira